STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Um er að ræða bjarta og snyrtilega 99,8 fm 4ra herbergja íbúð á þriðju hæð í snyrtilegu fjölbýli sem er með rúmlega 11fm aukaherbergi í sameign í kjallara. Skipt var um gler og glugga 2018 eftir þörfum ásamt því að húsið var múrviðgert og málað. Einnig var skipt um teppi í sameign og hún máluð árið 2019. Skipt var um járn og pappa í þaki árið 2023. Einnig var á sínum tíma setta í hljóðeinangrandi eldvarnarhurðar.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: [email protected]Forstofa er með flísum á gólfi og skápum.
Stofa er með plastparketi á gólfi og þaðan er útgengt á yfirbyggðar suðursvalir sem hægt er að opna, flísar á svalagólfi.
Eldhús er með plastparketi á gólfi, hvít viðarinnrétting með flísum á milli efri og neðri skápa.
Svefnherbergin eru 3 og eru 2 með plastparketi á gólfi og 1 með dúk á gólfi. Skápar í aðalsvefnherbergi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi ásamt flísum í kringum baðkar með sturtu, wc, skápar undir vask og efri skápur. Einnig er gluggi með opnanlegt fag.
Þvottahús er í sameign og þar er hver með sína þvottavél.
Geymsla er í sameign í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Aukaherbergi í kjallara er 11,2 fm og í sameign er snyrting með wc og vask.