Klettagljúfur 23, 816 Ölfus
340.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús með aukaíbúð
12 herb.
590 m2
340.000.000
Stofur
3
Svefnherbergi
8
Baðherbergi
5
Inngangur
Sér
Byggingaár
2007
Brunabótamat
136.950.000
Fasteignamat
91.950.000

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Um er að ræða stórglæsilegt einbýlishús með tveimur aukaíbúðum í Klettagljúfri í Ölfusi, eignin er aðeins í 35 mín akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.
Stórglæsilegt útsýni til suðurs, vesturs og norðurs frá eigninni.
Eignin er skráð á tvö fastanúmer í dag og er skipt upp í þrjár íbúðareiningar og eru tvær þeirra í útleigu með góðum leigutekjum.
Eignin er 590.5 fm að heildarstærð (1.hæð er 286.3 fm og 2.hæð er 304.2 fm) og stendur á 5745 fm eignarlóð. Fallegt útsýni til norðurs, vesturs og suðurs frá eign.

Samkvæmt deiliskipulagi um Gljúfurárholt í Ölfusi síðan 2007 kemur fram að heimilt er að reisa 100 fm hesthús á lóðinni og er búið að jarðvegskipta fyrir því norðan megin við húseign
Vandaður frágangur og innréttingar í öllu húsinu sem að var allt hannað af Rut Káradóttur innanhúsarkitekt, gólfhiti og loftræstikerfi í húseigninni.

Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: [email protected]

Íbúð á efri hæð, aðalrými:
Þar er komið inn í forstofu með flotuðu gólfi og fataskápum.
Eldhús, stofa og borðstofa mynda eitt alrými með mikilli lofthæð þar sem hljóðdúk hefur verið komið fallega yfir rýmið. Stoðveggur aðskilur borðstofu og stofu frá eldhúsi og í vegg er arinn klæddur með blámaðri járnklæðningu. 
Eldhús er mjög rúmgott með fallegri hvítri eldhúsinnréttingu með skápum uppí loft, búrskápur í innréttingu, innbyggður ísskápur og uppþvottavél í innréttingu, eldunareyja með gashelluborði í borðplötu, gott skúffupláss er í eyjunni og hægt er að sitja við eyju og nýta sem eldhúsborð. 
Herbergisgangur og innaf honum er aðalbaðherbergi sem að er með flísum á veggjum, vönduð innrétting í kringum vask með góðum tækjum, flísalagður setbekkur við hlið vasks, Walk-in sturtuklefi með glerskilrúmi, vegghengt salerni, speglaveggur með lýsingu í.
Tvö mjög rúmgóð svefnherbergi sem eru skápalaus.
Innst á herbergjagangi er komið inní rúmgóða hjónasvítu sem að er með rúmgóðu fataherbergi inn af og eru fataskápar þar yfir allan vegginn, útgengt er úr fataherbergi út á svalir til norð-vesturs.
Þvottaherbergi sem að er rúmgott með góðum innréttingum og skápum, góðu borðplássi með skolvask og flísalagður setbekkur þar við hlið, á móti innréttingu er salernisherbergi og þar er vegghengt salerni, sér Walk-in sturtuklefi er einnig innaf þvottaherbergi, útgengt er úr þvottaherbergi á svalir og þar er heitur pottur á svölum.
Auka forstofuherbergi með inngangi er innaf herbergjagangi og er inngengt þaðan í innbyggðan tvöfaldan 74 fm bílskúr sem að er með mikilli lofthæð, rafdrifnar bílskúrshurðar og er 3ja farsa rafmagn í bílskúr og búið að leggja fyrir rafmagnshleðslustöð í bílskúr. Innrétting með vask í bílskúr.

Aukaíbúð 1 á jarðhæð, stærri íbúð:
Íbúðin er fimm herbergja með sérinngangi, verönd og tveim baðherbergjum, gert er ráð fyrir sérbílastæðum fyrir íbúðir á jarðhæð.
Komið er inn um sérinngang frá jarðhæð í forstofu með góðum fataskápum.
Stofa, borðstofa og eldhús er opið og bjart rými með gluggum á tvo vegu og er útgengt úr eldhúsi á verönd til suð-vesturs.
Eldhús er rúmgott með fallegri hvítri eldhúsinnréttingu með skápum uppí loft, búrskápur í innréttingu, innbyggður ísskápur og uppþvottavél í innréttingu, eldunareyja með helluborði í borðplötu, gott skúffupláss er í eyjunni og hægt er að sitja við eyju og nýta sem eldhúsborð. Herbergisgangur og innaf honum eru fjögur svefnherbergi sem eru öll með fataskápum, aðalbaðherbergi sem að er með flísum á veggjum, vönduð innrétting í kringum vask með góðum tækjum, flísalagður setbekkur við hlið vasks, Walk-in sturtuklefi með glerskilrúmi, vegghengt salerni, speglaveggur með lýsingu í og gestabaðherbergi. Rúmgott þvottaherbergi með góðum innréttingum og skápaplássi og er gert ráð fyrir vélum í vinnuhæð í innréttingunni, vaskur er í borðplötu.

Aukaíbúð 2 á jarðhæð, minni íbúð:
Íbúðin er sett upp sem studio-íbúð í dag en auðvelt er hægt að stúka af svefnherbergi með glugga í íbúðinni.
Sérinngangur er í íbúð norðanmegin við húsið og er ágætis verönd þar fyrir framan.
Rúmgóð forstofa með fataskáp og innaf forstofu er þvottaherbergi með góðri innréttingu með skápum.
Stofa og eldhús er eitt opið rými, snyrtileg L-laga eldhúsinnrétting með viðarborðplötu, góðir skápar og hirslur í eldhúsi, innbyggð uppþvottavél í innréttingu. Útengi er um rennihurð úr á verönd úr stofunni.
Alrými með glugga sem að nýtt er í dag sem vinnuaðstaða en væri auðvelt að stúka af fyrir aflokað svefnherbergi og innaf því rými er svefnaðstaða íbúa í dag og eru góðir fataskápar í því rými.
Baðherbergi er með flísum á veggjum, vönduð innrétting í kringum vask með góðum tækjum, flísalagður setbekkur við hlið vasks, Walk-in sturtuklefi með glerskilrúmi, vegghengt salerni, speglaveggur með lýsingu í fyrir ofan vask, handklæðaofn.
Geymsla og inntaksrými er á jarðhæð og er gengið í það utanfrá.

ÝMISLEGT UM HÚSEIGNINA:
-Húseign er steinuð að utan og er þakkantur klæddur með álklæðningu.
-Öll gólf í húsinu eru flotuð og lökkuð með ljósum lit.
-Gólfhitakerfi og loftræstikerfi að stærstum hluta í húsi, ofnakerfi í minnstu íbúðinni.
-Innfelld lýsing er í öllum loftum húseignar.
-Í stofurými aðalhæðar er loft upptekið og er sérstakur hljóðdúkur bakvið loftaplötur.
-Sömu innréttingar, hurðar og fataskápar eru gegnum gangandi í öllu húsinu.




 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.