STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Bjarta og opna 94,8 fm 4 herbergja íbúð í nýlegu vel staðsettu lyftuhúsi í hjarta Garðabæjar.
Sér inngangur er frá utanáliggjandi svölum. Göngufæri er í leikskóla, grunnskóla, íþróttamiðstöðin Ásgarður, sundlaug og ýmsar verslanir, þjónustu og veitingastaði. Eigninni fylgir sérgeymsla í sameign og stæði í bílageymslu. Íbúðin skiptist í anddyri, gang, 3 góð svefnherbergi með fataskápum, stofu, eldhús og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Íbúðin er 87,6 fm (merkt 08-0204) og geymsla er 7,2 fm (merkt 08-0007) og samtals er eignins skráð 94,8 fm skv. skráningu Þjóðskrá Íslands.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: [email protected]Nánari lýsing:Forstofa er með dökkum fataskápum og parket á gólfi.
Eldhús er opið inn í stofu með eyju sem skilur að stofuna. Veggföst eyja sem hægt er að sitja við hægt er að koma þremur stólum við eyjuna. Eldunaræki frá AEG. Innbyggður ísskápur og tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa er rúmgóð og ber afar vel stórar mublur og borðstofuborð. Útgengt er út á svalir frá stofu. Svalir eru 6,6 m2 og snúa til suðvesturs.
Baðherbergi 7,3 m2 er flísalagt með stórum ljósdrapplituðum flísum. Innrétting við handlaug og gott skápa- og skúffupláss. Sturta með glerhurðum. Handklæðaofn og upphengt salerni. Þvottahús er innan íbúðar. Aðstaða og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi 13,1 m2 inn af stofu er rúmgott með fataskápum. Parket á gólfi.
Herbergi 9 m2 inn af gangi á vinstri hönd með fataskáp. Parket á gólfi.
Herbergi 9,5 m2 inn af gangi á hægri hönd er með fataskáp og parket á gólfi.
Geymsla er sér í sameign í kjallara og er 7,2 m2.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara.
Bílastæði er í lokaðri bílageymslu í kjallara.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.