STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Um er að ræða bjart og opið 3ja herbergja 96,6 fm raðhús á einni hæð með aukinni lofthæð og stæði í bílageymslu. Útgengt á lokaða verönd. Gott aðgengi er að húsinu og er snjóbræðsla í hellulögn. raðhúsið er staðsett í íbúakjarna og í miðju hans er samkomuhús sem er í eigu íbúanna sjálfra, þar hafa eigendur aðgang að vel búnum veilsusal, kaffistofu og samverustað. Seljendur fengu ljósahönnuð til þess að skipuleggja lýsingu og ljósafyrirkomulag í heildarrýminu fyrir utan litla herbergið. Eldhús er úr Fríform og var endurnýjað 2021. Gardínur úr Álnabæ.
Íbúð er 89,3 fm (merkt 01-0103) og geymsla er 7,3 fm (merkt 11-0041) samtals er eignin skráð 96,6 fm skv. skráningu Þjóðskrá Íslands.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s. 690-1472 eða með tölvupósti: [email protected] ogHallveig Jónsdóttir, Nemi í löggildingu, í síma 699-0496, netfang [email protected]Forstofa er með flísum á gólfi og skápum.
Hol er parket á gólfi.
Stofa er með parket á gólfi og þaðan er útgengt á lokaðan vesturpall með hliði, ásamt litlum skúr.
Eldhús er með parketi á gólfi, hvítri innréttingu með granítplötu á borði, flísar á einum vegg og gler á öðrum veggnum.
Svefnherbergin eru tvö og eru með parketi á gólfi, í aðalsvefnherbergi er lítil geymsla með hillum, rúmgóður sólbekkur og skápar undir sólbekk.
Baðherbergi er með flísum á gólfi ásamt flísum á hluta veggja, upphengt wc, handklæðaofn, sturtuklefi og skápar yfir og undir vask
Þvottahús er á baðherbergi, tengi fyrir þvottavél í skáp á baðherbergi.
Geymsla er í sameign í bílageymslu.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign í bílageymslu.
Bílageymsla í bílageymslu eru hleðslustöðvar fyrir rafbíla. Einnig er sameiginlegt bílaþvottastæði í bílageymslu og dekkjageymsla.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.