Hvassaleiti 18, 103 Reykjavík (Kringlan/Hvassal)
72.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
4 herb.
111 m2
72.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1961
Brunabótamat
48.960.000
Fasteignamat
64.650.000

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Um er að ræða bjarta og opna 3ja til 4ra herbergja 111,4 fm íbúð á þriðju hæð í snyrtilegu fjölbýli ásamt bílskúr. Sameignin er mjög björt og snyrtileg, þar er búið að skipta um gler og glugga í sameign ásamt því að skipt var um teppi og sameign máluð fyrir nokkrum árum. Húsfélagið á íbúð á jarðhæð sem þau leigja út og renna leigutekjur í hússjóð. 
Gluggar og gler endurnýjaðir í sameign á austurhlið, múrviðgerðir og málun, skipt um glugga og gler á suðurgafli og austurhlið, skipt um þakpappa, þakjárn og túður.
Dren endurnýjað, steyptar nýjar tröppur fyrir framan anddyri, stétt fyrir framan hús endurnýjuð með hitalögn.Múrviðgerðir og málun á norðurgafli og vesturhlið, skipt um gluga, gler og svalahandrið, hurðir endurnýjaðar. Stofnlagnir undir húsinu hafa verið endurnýjaðar sem og kaldavatnslagnir í sameign.

Íbúðin er 86,1 fm (merkt 01-0302), geymsla er 5,0 fm (merkt 01-0007) og bílskúr er 20,3 fm (merkt 04-0107) samtals er eignin skráð 111,4 fm skv. skráningu Þjóðskrá Íslands.

Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: [email protected] og
Hallveig Jónsdóttir, Nemi í löggildingu, í síma 699-0496, netfang [email protected]


Forstofa er með parketi á gólfi ásamt upphengi, gæti verið skápur en hann var fjarlægður.
Hol er með parketi á gólfi og þar er nú lítil vinnuaðstaða, í sumum íbúðum hefur þar verið bætt við þriðja herberginu.
Stofa er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á vestur svalir.
Eldhús er með parketi á gólfi, hvítir neðri skápar sem hafa verið endurnýjaðir öðru megin en efri skápar eru upprunalegir, flísar á milli efri og neðri skápa.
Svefnherbergin eru tvö og eru með parketi á gólfi, skápar í aðalsvefnherbergi en laus skápur í barnaherbergi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, wc, baðkar með sturtu, handklæðaofn, gluggi með opnanlegt fag, skápar og skápar undir vask.
Þvottahús þvottavél á baðherbergi.
Geymsla er í sameign í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign í kjallara.
Bílskúr er með stein á gólfi.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.